Kvæði af Ólafi liljurós

1. Ólafur reið með björgum fram,

– rauður loginn brann, –

hitti fyrir sér álfarann.

– Þar lá búinn byrðing undan björgunum fram.

2. Þar kom út ein álfamær

gulli snúið var hennar hár.

3. Þar kom út hin önnur,

hélt á silfurkönnu.

4. Þar kom út hin þriðja,

silfurlinda um sig miðja.

5. Þar kom út hin fjórða,

henni varð skjótt til orða.

6. Velkominn Ólafur liljurós,

gakk í búð og drekk hjá oss.

7. Eg vil ei með álfum búa,

heldur vil eg á Guð minn trúa.

8. Þó þú viljir með álfum búa,

samt máttu á Guð þinn trúa.

9. Bíð þú mín um litla stund,

meðan eg geng í græna lund.

10. Hún gekk sig til kistu,

axlaði yfir sig skikkju.

11. Hún gekk sig til arkar,

greip upp saxið snarpa.

12. Þú mut ei so héðan fara,

að þú munir oss kossinn spara.

13. Ólafur leit um söðulboga,

kyssti hann frúna af heilum huga.

14. Hún lagði undir hans herðarblað,

í hjartarótum staðar gaf.

15. Hún lét hönum svíða,

sárasax með síðu.

16. Ólafur leit sitt hjartablóð,

undir fæti á fola stóð.

17. Ólafur keyrði hest með spora,

so reið hann til móður dyra.

18. Klappar á dyr með lófa sín,

„ljúktu upp ástar móðirin mín.“

19. „Hvaðan komstu, sonurinn minn“,

„hvörninn ertu so fölur á kinn.“

20. „So ertu blár og so ertu bleikur“,

„sem þú hafi verið í álfaleik.“

21. „Mér tjáir ekki að dylja þig“,

„álfamærin blekkti mig.“

22. „Móðir, ljáðu mér mjúka sæng“,

„systir, ljáðu mér síðuband.“

23. Leiddi hún hann í loftið inn,

dauðann kyssti hún soninn sinn.

24. Þar var meiri grátur en gaman,

þrjú fóru lík í steinþró saman.